Sunday, April 15, 2007

 

Sprunginn...

Ég er alveg búinn á því núna. Við héldum 2 afmæli fyrir Köru um helgina...eitt bekkjasystra afmæli og eitt íslenskt afmæli. Litla stelpan mín orðin 7 ára skvísa. Get varla haldið uppi höndunum ég er svo þreyttur (...af hverju í ósköpunum ætti ég vera mikið með hendurnar beint upp í loft?...en það er önnur pæling). Erla var eins og hershöfðingi í eldhúsinu í kökubakstri alla helgina. Ég skil ekki hvernig hún heldur augunum opnum núna. En frábær helgi að baki sem heppnaðist vel. Ég ætla að fara að slefa í koddann minn og hrjóta duglega.

Heyrumst...
Elli.

Comments:
Erfiði ykkar skötuhjúa borgaði sig því að afmælið var frábært :-)
Takk fyrir okkur !!
 
iss við héldum 3 frá fimmtudegi fram á sunnudag. deili sem sagt þreytunni með þér. bóas
 
Post a Comment

Subscribe to Post Comments [Atom]





<< Home

This page is powered by Blogger. Isn't yours?

Subscribe to Posts [Atom]